Varamaður tekur þingsæti

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 13:32:00 (4105)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 10. mars 1992:
    ,,Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Ásta R. Jóhannesdóttir deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Finnur Ingólfsson, 11. þm. Reykv.``


    Kjörbréf Ástu R. Jóhannesdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi á síðasta kjörtímabili og hefur því unnið drengskaparheit að stjórnarskránni og er hún boðin velkomin til starfa á Alþingi á ný.