Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Vegna þessa tiltekna máls sem hv. fyrirspyrjandi vék að þá er rétt að vekja athygli hv. þm. á því að þar var um að ræða rækju sem er sameiginlegur stofn með okkur og Grænlendingar hafa ekki fengist til þess að gera samkomulag um skiptingu á. Ég vil aðeins taka það fram að við megum ekki undir nokkrum kringumstæðum láta skammtíma þrönga sérhagsmuni veikja stöðu okkar þegar við eigum mjög víðtæka langtímahagsmuni vegna samningskröfu okkar og réttarstöðu gagnvart öðrum þjóðum. Þess vegna er óhjákvæmilegt að fylgja þessu eftir að því er rækjuna varðar. Auðvitað má það vera umdeilanlegt að hafa veitt Grænlendingum slík leyfi og það kann vel að vera að þau þurfi að koma til endurskoðunar ef þeir fallast ekki á að ganga til samninga um þá stofna sem ekki hefur náðst samkomulag um. Óhjákvæmilegt verður að óska eftir viðræðum við þá þar að lútandi. En það væri verið að fórna víðtækum langtímahagsmunum okkar fyrir þrönga sérhagsmuni ef við létum eftir í þessu efni.