Reglugerð um ábyrgðasjóð launa og skyldusparnaður

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 13:58:00 (4120)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ég fagna þeirri yfirlýsingu ráðherra að hann skilgreini skyldusparnað sem hluta af vinnulaunum sem falli þar með undir lög um ábyrgðarsjóð launa.
    Hvað varðar skipan stjórnar og útgáfu reglugerðar um sjóðinn þá tel ég afar brýnt að ekki verði dráttur á umfram það sem komið er.