Hringvegurinn

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 14:55:00 (4136)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Ég sat hjá í atkvæðagreiðslu um hvort vísa bæri vegáætlun til fjárln. eða samgn. Henni hefur verið vísað til fjárln. og ég hefði þess vegna talið eðlilegt að ég sæti hjá. Hér er ég tvisvar skráður með nei án þess að hafa snert þann hnapp. Það er bæði í atkvæðagreiðslu um flugmálaáætlun og um menntamál. Ég segi nú bara eins og er, herra forseti, ég skil þetta ekki.