Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 17:15:00 (4156)

     Björn Bjarnason (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Raunar er óþarfi fyrir mig að halda þessu áfram því að hv. 2. þm. Austurl. endurtók það sama og við ræddum hér, ég og hv. 1. þm. Austurl. En ekki þurfti þetta frv. sem hér liggur fyrir til til þess að viðskiptin við Sovétríkin legðust niður. Sovétríkin hafa verið lögð niður og þetta frv. breytir engu um það.