Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 17:17:00 (4158)

     Björn Bjarnason (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tel að það muni ráðast af markaðsaðstæðum hvort íslensk fyrirtæki vilji eiga viðskipti við fyrirtæki í Rússlandi eða öðrum samveldislýðveldum og það verði að koma í ljós hvernig þau mál þróist. En ég tel að það sé ekki sérstakt hlutverk íslenska ríkisvaldsins að stofna til slíkra viðskipta.