Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 18:05:00 (4168)


     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil eingöngu bæta því við að ég tel að þróunin verði önnur. Ég tel að hún verði þannig að félögin muni frekar sjá um ákveðin svæði hvert og eitt, þau muni sjá sóma sinn í því að veita þjónustu og skipta svæðum á milli sín. Ég tel að þróunin verði þannig en ekki eins og núna að olíufélögin séu jafnvel að afgreiða olíuvörur hvort sínum megin við sömu götuna þar sem ekki nokkur einasti möguleiki er á að þau geti haft upp í kostnað.