Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 18:36:00 (4173)


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil frábiðja mér þvílíkan útúrsnúning sem hér kom fram hjá hæstv. ráðherra þegar hann sagði að ég kenndi skammar. Ég sagðist hafa skömm á þeim málflutningi sem uppi væri hafður. Ég get alveg farið með hæstv. ráðherra yfir ræðu hans áðan og þann sífellda samanburð, sem m.a. kom fram hjá hv. 3. þm. Reykv. í þessari sömu umræðu, á því kerfi austan tjalds sem hefur leitt til örbirgðar og þeirri jöfnun sem við höfum haldið hér á landi og hefur fært okkur í hóp efnuðustu þjóða heims. Það kemur því ekki við hvort við hefðum viðhaldið áfram því kerfi á olíuflutningi sem verið hefur. Ég er ekki talsmaður eða varnarmaður þess.