Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 18:40:00 (4176)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég þarf ekki nema eina mínútu. Ég vil fyrst þakka hæstv. viðskrh. fyrir að hann mun skoða þetta með Reyðarfjörð. En hitt er annað mál að ég hélt því fram að það að afnema flutningajöfnun á bensíni þurfi ekki að hanga saman við það að gefa útgerðinni afslátt af sínum olíuvörum. Ég vil að það komi fram og ætla svo ekki að halda uppi meiri orðaskiptum við hæstv. iðnrh. að sinni.