Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Mig langar fyrst að segja að ég held að skilningur síðasta ræðumanns, hv. 14. þm. Reykv., á eðli þessa frv. sé því miður alrangur. ( GHelg: Sem betur fer, meinar ráðherrann.) Ég á við að því miður muni skilningur hv. þm. ekki vera betri. Ég er ekki að tala um efni frv. því ég held að hv. þm. ætti reyndar að fá að taka þátt í fundi efh.- og viðskn. þingsins þegar fulltrúar olíufélaganna koma þar til þess að skýra viðhorf sín til þessa frv. því að þar mun koma í ljós að þeir telja ýmsir á sig hallað þar og það verulega, þannig að þetta frv. . . . (Gripið fram í.) Nei, virðulegi þingmaður, þetta frv. fjallar alls ekki um það að jafna aðstöðu milli olíufélaganna. Þetta frv. fjallar um jöfnun að takmörkuðu leyti til þess að brúa bilið á milli kerfis sem var miðstýrt yfir í valddreift, frjálst viðskiptakerfi sem ég tel. Og með því vil ég svara einni spurningu þingmannsins, að ég tel að frv. muni færa okkur lægra olíuverð, ekki síst því fólki sem hv. 14. þm. Reykv. er fulltrúi fyrir. Ég vona að þetta svari spurningunni jafnskýrt og orðið getur. (Gripið fram í.) Já, einmitt er hún það.
Síðan kem ég að því hvort hv. þm. hafi tekið rétt eftir. Hann hélt því fram að ég hefði sagt að það væri ekki rétt að ríkið væri að vasast í alls konar jöfnunarkerfum. Hv. þm. hlýtur nú að hafa hlaupið þarna yfir nokkur orð vegna þess að það sem ég sagði, auðvitað hef ég það ekki skrifað því það var talað af munni fram, var að ríkið ætti ekki að vera að vasast í fyrirtækjunum til þess að koma fram jöfnun eftir þeim farvegum. Ríkið á einmitt, ég tek það mjög sterkt fram, að rækta sín jöfnunarkerfi sem snúa að fólkinu og að jafna kjör þess en vera ekki að þvælast með jöfnun í gegnum viðskiptalega farvegi því þar situr yfirleitt einhver peningur eftir á stöðum sem ekki var til ætlast.