Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 18:47:00 (4180)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get að vísu ekki glatt eyru hv. 14. þm. Reykv. með því að láta nið aldanna hljóma. M.a. hef ég ekki verið jafnlengi á þingi og hv. þm. Ég spyr sjálfan mig að því hversu lengi menn þurfa að vera á þingi til þess að kynnast því sem kalla mætti málamiðlun í jöfnunaraðgerðum af hálfu hins opinbera. Ég hélt að menn þyrftu ekki að vera mjög lengi á þingi til þess.