Afgreiðsla þingmála stjórnarandstöðunnar

99. fundur
Miðvikudaginn 11. mars 1992, kl. 13:44:00 (4188)

     Össur Skarphéðinsson :
    Frú forseti. Sem varaformaður allshn. get ég einungis staðfest það að fyrir liggur vilji nefndarinnar að taka á þessu ákveðna máli sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir drap hér á. Það hefur ekki nokkur maður reynt að þæfa það, þreyta eða tefja með nokkrum hætti. Það er einfaldlega staðreynd að það er óvenjumikið vinnuálag á þessari nefnd en ég get lýst því hér yfir fyrir hönd meiri hluta nefndarinnar að við munum við fyrsta tækifæri beita okkur fyrir því að þetta mál verði afgreitt með viðunandi hætti frá nefndinni.