Þjóðarbókhlaða og endurbætur menningarbygginga

99. fundur
Miðvikudaginn 11. mars 1992, kl. 14:03:00 (4201)

     Guðrún Helgadóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Ég vil spyrja hæstv. forseta, ég óskaði eftir frestun á þessu máli. Hvaða ástæða er til þess að hafna því? Ég kannast ekki við það að slíkri beiðni hafi verið neitað hingað til. Hvað gerir það svo brýnt að það sé ekki hægt að verða við þessari beiðni?