Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

99. fundur
Miðvikudaginn 11. mars 1992, kl. 15:56:00 (4215)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er leitt til þess að vita að hæstv. umhvrh. skuli ekki geta tekið græskulausu glensi sem var ekki sérstaklega beint gegn honum. Hins vegar vil ég benda honum á að ég var ekkert sérstaklega að skemmta mér yfir þessu frv. nema hvað varðaði ísbjörninn, en lýsti því yfir að menn væru búnir að hafa gaman af því í umræðum og ýmsu því sem þeim þætti furðulegt í þessu frv. og það gæti líka verið gott að fá skemmtileg frv. til umfjöllunar. Frv. geta að sjálfsögðu verið fyllilega tímabær og þörf þó að menn bregði á glens í umræðum.