Kristinn H. Gunnarsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Mér þykir það nokkuð undarlegt hversu hæstv. sjútvrh. tekur því illa að hér sé komið og óskað eftir því að hann flytji skýrslu um mál, einkum í ljósi þess hvernig umræðan endaði. Þetta er ekki fordæmislaust. Svona hlutir hafa gerst áður í vetur, t.d. óskaði ég einu sinni eftir því þegar umræða um Skipaútgerð ríkisins var úti, og fór þá upp um þingsköp, að hæstv. samgrh. flytti skýrslu til Alþingis um það mál. Ráðherrann tók því ákaflega vel og svo var gert fáum dögum síðar. Þá fengu menn tækifæri til að halda áfram umræðunni og ljúka henni.
Ég vil því spyrja hæstv. sjútvrh.: Telur hann að hæstv. samgrh. hefði ekki átt að fallast á það að flytja skýrslu? Finnst honum það óþinglegt? Finnst honum það alveg ómögulegt að menn biðji um það að ráðherra flytji að eigin frumkvæði skýrslu? Auðvitað verða svona hlutir að vinnast í sæmilegu samkomulagi milli manna og það höfum við gert í vetur. Þetta er alveg nýjung að ráðherra stilli sér þannig upp að hann vilji ekkert við stjórnarandstöðuna tala. Það er nýjung.