Rannsókn Kjörbréfs

102. fundur
Mánudaginn 16. mars 1992, kl. 13:40:00 (4364)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 12. mars 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Alþb. í Reykjavíkurkjördæmi, Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Guðrún Helgadóttir, 14. þm. Reykv.``


    Kjörbréf Auðar Sveinsdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því samkvæmt 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.