Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
:
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hv. efh.- og viðskn. fyrir athugun hennar og umbætur á frv. Tillögurnar sem nefndin hefur lagt fram og hv. 1. þm. Vestf., formaður nefndarinnar, hefur gert grein fyrir, eru að mínu áliti til bóta. Ég vil líka nefna það vegna þess sem fram kom í máli hv. síðasta ræðumanns, 4. þm. Norðurl. e., að ég leit svo á að orðalag 18. gr. laganna, 2. gr. frv., hefði einmitt fengið sérstaka meðferð í nefndinni. Eins og réttilega var bent á við 1. umr. var þar sitthvað í orðalagi sem betur mátti fara. Við erum ekki að reyna að vinna til Nóbelsverðlauna heldur að skrifa skýran lagatexta sem ég tel að hafi nú tekist, m.a. með góðri hjálp nefndarinnar. Ég vil nefna þetta vegna þeirrar spurningar hv. 4. þm. Norðurl. e. sem mér fannst nú einna mestu máli skipta, þ.e. hvort orðalagið sem er í 1. málsl. 18. gr. laganna eins og tillaga er nú gerð um að hún orðist sé ekki komið í sæmilegt horf. Þar segir nú: ,,Seðlabankinn ákveður að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar hvernig verðgildi íslensku krónunnar`` o.s.frv. skuli ákveðið.
Ég tel þetta í góðu samræmi við þá meginstefnu brtt. sem gerðar eru, að Seðlabankinn fari í meira mæli en fyrr með tilhögun gengisskráningarinnar. Samþykki ríkisstjórnarinnar er eingöngu bundið við fyrirkomulagið, ekki gengið sjálft. Þetta er sú grundvallarbreyting sem tillaga er gerð um. Ég er þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að leita eftir samþykki ríkisstjórnarinnar þegar grundvallarbreyting er gerð á gengistilhögun, t.d. eins og tilgangur frv. er og skýrt hefur komið fram, að stefnt sé að því að þróa markaðsviðskipti hér á landi með gjaldeyri. Ég vildi líka svara þeirri spurningu hv. 4. þm. Norðurl. e. hvort slíkar breytingar séu raunhæfar á þeim tíma sem að er stefnt. Mitt álit er að raunhæft sé að hefja þær breytingar á þessu ári upphaflega með millibankamarkaði með gjaldeyri en síðan er stefnt að því að víkka hring þeirra aðila sem eiga viðskipti með gjaldeyrinn.
Eins og kom fram í framsöguræðu minni, er nauðsynlegt að undirbúa jarðveginn fyrir slíkar breytingar með því að hrinda í framkvæmd ýmsum breytingum í gengis-, gjaldeyris- og peningamálum til þess að unnt verði, ef menn ákveða það að tengja gengi krónunnar við ECU t.d. á næstu árum, eins og stefna ríkisstjórnarinnar stendur til og til þess að undirbúa þennan markað. Ég tek undir það með hv. 4. þm. Norðurl. e. að undirbúningsvinnan er mjög mikilvæg. Frv. er einmitt liður í henni og þess vegna vonast ég til þess að það hljóti afgreiðslu nú.
Vegna ábendinga frá hv. 4. þm. Norðurl. e. þá er ég honum sammála um það að mjög mikilvægt er að Seðlabankinn lúti góðri stjórn. Ég er honum sammála um að það þurfi að endurskipuleggja hann og efla stjórn hans sérstaklega. Ég minni á að á vegum viðskrn. situr nefnd að störfum sem skipuð var í byrjun sl. árs og er einmitt að semja nýtt lagafrv., heildarendurskoðun seðlabankalaga, til þess að gera bankann betur færan um að sinna hlutverki sínu í nýju markaðsumhverfi, við opnari fjármagnsmarkað og markaðsviðskipti með gjaldeyri þegar fram í sækir. Þessi breyting, sem við ræðum nú, er mjög mikilvægt skref í þessu efni. Hins vegar tek ég undir með hv. 4. þm. Norðurl. e. að það sé naumast fært við þessa umræðu að taka upp almennar umræður um hlutverk Seðlabankans, skyldur og framkvæmd þeirra. Þegar frv. lítur dagsins ljós mun hins vegar gefast gott tækifæri til þess og ég fyrir mitt leyti stefni að því að koma því til þingsins, ef ekki í vor, þá í haust og ætla til þess góðan tíma.
Ég tel þetta mjög mikilvægt verkefni og fagna því að heyra skilning á því máli af hálfu hv. 4. þm. Norðurl. e. Ég veit reyndar að margir nefndarmanna í efh.- og viðskn. hugsa hið sama og hygg ég gott til samstarfs við nefndina, formann hennar og aðra nefndarmenn. Vil ég lýsa stuðningi mínum við þær brtt. sem nefndin hefur flutt.