Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Mér þótti vænt um að heyra staðfestingu hæstv. viðskrh. á því að hér ríkti fákeppnismarkaður á okkar fjármagnsmarkaði sem því miður hefur á seinustu árum orðið þess valdandi að fjármunir hafa flust svo milljörðum skiptir frá undirstöðuatvinnuvegunum, það sýnir afkoma þeirra, og frá skuldsettum heimilum til hinna sem eiga fjármagnið. Þetta er því miður hinn raunalegi raunveruleiki sem við stöndum frammi fyrir gagnvart vaxtamálunum.
Varðandi fullyrðingar hæstv. ráðherra um vaxtalækkun að undanförnu vil ég benda á að allt tal um lækkun nafnvaxta, mikla lækkun nafnvaxta, er mjög villandi. Svo var komið, þrátt fyrir lækkun nafnvaxta á síðustu vikum fyrra árs, að raunvextir á óverðtryggðu innlendu fjármagni voru komnir yfir 20%. Fyrir nokkrum áratugum hét það okur og menn voru dæmdir í fangelsisvist fyrir síka starfsemi. Það er hins vegar í dag hluti af fákeppnismarkaðnum sem hæstv. viðskrh. hefur varið á síðustu árum.