Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

103. fundur
Þriðjudaginn 17. mars 1992, kl. 17:43:00 (4423)

     Jóhann Ársælsson :
    Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin, sérstaklega um fyrri spurninguna, en ég kem hér aðeins til að segja að það þarf þá að breyta orðanna hljóðan í 11. gr. vegna þess að þar segir nú að á veiðikortið skuli getið tegunda og fjölda dýra sem viðkomandi hefur leyfi til að veiða. Ekki er gert ráð fyrir því að það sé heimilt heldur að það skuli gert og þá þarf að breyta orðanna hljóðan þar.