Endurskoðun iðnaðarstefnu

103. fundur
Þriðjudaginn 17. mars 1992, kl. 22:26:00 (4459)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Eins og kom fram í máli mínu áðan þá hyggst ég leggja fyrir þingið á næstunni skýrslu sem svar við beiðni hv. 9. þm. Reykv. o.fl. sem fram var lögð í október á liðnu ári.
    Ég gæti hugsað að skýrslan yrði hér lögð fyrir þingið fyrir lok þessa mánaðar og ég vona að það svari þá spurningu þingmannsins nánar þótt ég telji reyndar að fyrra svarið hafi verið nógu nákvæmt.