Afgreiðsla lagafrumvarpa í tengslum við EES-samninginn

104. fundur
Miðvikudaginn 18. mars 1992, kl. 13:51:00 (4479)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti telur það eðlilegt og sjálfsagt að fjalla um þetta mál á fundi með formönnum þingflokka og væntir þess að þá verði hægt að gefa ítarlegri upplýsingar um þetta mál og ræða það betur. Forseti vill jafnframt benda á að hér í þinginu fyrr í vetur kom fram fyrirspurn frá hv. 4. þm. Austurl., sem utanrrh. hefur svarað, um þinglega meðferð á þessum málum. En að öðru leyti, eins og forseti sagði fyrr, mun forseti vera fús til að svara þessu ítarlega við betra tækifæri, þegar forseti hefur fundargerðina í höndunum.