Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á því og sérstaklega síðasta hv. ræðumanns, 8. þm. Reykn., að við erum hér að ræða það frv. sem fyrir var mælt í nóvember sl. Nefndin hefur fallist á að flytja það óbreytt til 2. umr. Það vekur því furðu mína ef menn þurfa nú að skoða það betur þótt að sjálfsögðu ákveði þingið það. En ég vek athygli á því að það er ekki heldur verið að ræða um skipulag gengismála í þessu frv. Þetta frv. snýst um sölu og skilaskyldu á erlendum gjaldeyri til þess að gefa færi á markaðsþróun í þessum viðskiptum. Ég mælist eindregið til þess að málið verði afgreitt í samræmi við þann vilja sem í þinginu er að myndast fyrir því.