Greiðsla ferðakostnaðar vegna tannréttinga

105. fundur
Fimmtudaginn 19. mars 1992, kl. 11:40:00 (4542)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því að í svari hæstv. heilbrrh. áðan kom fram að fyrirspyrjandi gæti leitað sér þessara upplýsinga í Stjórnartíðindum, blaði Tryggingastofnunar og kannski hjá fleirum sem hafa auglýst þetta. En ég vil bara benda á að vitaskuld erum við þingmenn að leita okkur upplýsinga hér til þess að það sé skráð í þingtíðindum og til þess að vekja athygli á málinu. Það er fyrst og fremst það sem við

erum að gera. Þetta mál um tannréttingar barna snertir mjög marga og ekki hvað síst okkur á landsbyggðinni. Ég fagna því að hv. þm. skuli hafa komið með þessa fyrirspurn.