Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
:
Virðulegi forseti. Tryggingastofnun ríkisins hefur þá sérstöðu meðal margra opinberra stofnana sem ekki margar aðrar stofnanir hafa að hún rekur umboðsskrifstofur í öllum umdæmum landsins. Almenningur á því tiltölulega auðvelt með að afla sér upplýsinga og þjónustu frá umboðsskrifstofum Tryggingastofnunar víða um land, mun auðveldara en gerist og gengur um aðrar opinberar þjónustustofnanir allflestar. Stofnunin hefur því ekki talið ástæðu til að taka upp svonefnt grænt númer enda er ekki gert ráð fyrir greiðslu kostnaðar þess vegna í fjárveitingum til stofnunarinnar. En eins og hv. þm. tók fram yrði stofnunin sjálf að standa undir þeim kostnaði sem það hefur í för með sér að taka upp þessi grænu símanúmer. Alþingi hefur á undanförnum árum ekki afgreitt neinar slíkar fjárveitingar til reksturs Tryggingastofnunar ríkisins að hún gæti gert þetta. Sjálfsagt er ástæða til þess að athuga hvort unnt er að veita þessa þjónustu en það á heima í fjárlagagerð og

fjárlagaafgreiðslu hverju sinni. Ef Alþingi hefur áhuga á því að Tryggingastofnun ríkisins taki slíka þjónustu upp er ráðið að gera grein fyrr því og gera ráð fyrir því við fjárlagaafgreiðslu að yfirstjórn Tryggingastofnunar ríkisins geti kostað slíka þjónustu. Það er ekki í þeim fjárlögum sem afgreidd hafa verið.