Hjálmar Jónsson
:
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda að vekja máls á þessu atriði og svör hæstv. menntmrh. Landsmenn vilja bætta þjónustu útvarpsins og Ríkisútvarpið vill gjarnan veita þá þjónustu og lög standa líka til þess að svo megi verða og skuli vera. En sannarlega er ljóst líka hvar skórinn kreppir. Ákvæði útvarpslaga um tekjustofna Ríkisútvarpsins eru að nokkru leyti felld úr gildi með lánsfjárlögum eins og fram kom í svari hæstv. menntmrh. En aðflutningsgjöld af útvarps- og sjónvarpstækjum eru einmitt ætluð til þess að greiða fyrir þann stofnkostnað sem er af svæðisútvörpum.
Þegar Ríkisútvarpið er þannig svipt þessum tekjulið er það jafnframt svipt möguleikum að byggja upp svæðisstöðvar. Óskir hafa komið fram um það líka frá Sunnlendingum að svæðisútvarp verði rekið þar. Fram kom fyrr í umræðum í dag að ekki þarf miklu til að kosta þannig að unnt verði að senda út til Vestfjarðamiða. Margt fleira þannig er hægt að gera án sérstaklega mikils tilkostnaðar. Full þörf er á því að hið háa Alþingi fari að taka á málinu af festu og tryggi það að Ríkisútvarpið standi undir nafni sem útvarp allra landsmanna.