Varamaður tekur þingsæti

109. fundur
Miðvikudaginn 25. mars 1992, kl. 13:30:00 (4731)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 24. mars 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að þar sem 1. varamaður Alþb. í Reykjavík situr nú á Alþingi taki 2. varamaður Alþb. í Reykjavík, Guðmundur Þ Jónsson, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Svavar Gestsson, 9. þm. Reykv.``


    Kjörbréf Guðmundar Þ Jónssonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því skv. 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.