Réttur til veiða í efnahagslögsögu Íslands

109. fundur
Miðvikudaginn 25. mars 1992, kl. 15:04:00 (4746)

     Hjálmar Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. 2. þm. Vestf. um kærleikann og nauðsyn kristilegra dyggða og vil svara með þessum orðum gamallar vísu sem ég lærði einnig í bernsku:
        Sæt er hefnd því erfitt er
        æsta lund að sefa,
        en sælli ertu auðnist þér
        að elska og fyrirgefa.