Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir)
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Mér finnst það merkileg tíðindi ef verk- og kostnaðaráætlanir húsameistara ríkisins eru farnar að standast því að frægt er dæmið af Flugstöðinni í Keflavík þar sem við sitjum uppi með gífurlegar skuldir eftir þá byggingu.
Margt væri hægt að ræða varðandi verk- og kostnaðaráætlanir í byggingarstarfsemi hér á landi, ekki síður hjá ríkinu en annars staðar. Til þess gefst ekki tími hér. Það hefur verið bent á að það sé mikill ókostur hvernig hér sé að verki staðið þegar verið er að hanna byggingar nánast um leið og þær eru byggðar í stað þess að ljúka slíkum álætlunum fyrir fram og standa síðan fast á bremsunum og sjá til þess að áætlanir standist.
Að öðru leyti er ekki meira um þetta að segja. Það kemur hér fram að embætti húsameistara ríkisins er ekki í verkefnum úti í bæ, alla vega ekki opinberlega. Hins vegar sinna starfsmenn þess ýmsum verkefnum utan síns vinnutíma, ég vona alla vega að þeir séu ekki að vinna að öðrum verkefnum í sínum vinnutíma. En mér finnst ekki óeðlilegt að þeir sinni kirkjubyggingum og öðru slíku. Þetta fellur náttúrlega undir hinn opinbera geira.