Fríverslunarsamningur EFTA við Tyrkland

112. fundur
Föstudaginn 27. mars 1992, kl. 12:26:00 (4848)

     Forseti (Karl Steinar Guðnason) :
    Það vill nú svo til að það er forseti sem úrskurðar það hvað er dagskrárefni og hvað ekki þegar um svona er að ræða. Mér sýnist alveg ljóst að skýrsla utanrrh., sem kemur á dagskrá í næstu viku, er annað dagskrárefni en það sem er nú á dagskrá. Menn verða að una því.