Seðlabanki Íslands

113. fundur
Mánudaginn 30. mars 1992, kl. 14:01:00 (4889)

     Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Matthías Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Efh.- og viðskn. tók þetta frv. aftur til umræðu og meiri hluti hennar sér ekki ástæðu til þess að gefa út annað nál. þar sem það er skoðun meiri hlutans að frv. í þeim búningi, sem það er nú í, falli að því sem meiri hlutinn lagði til og er andvígur því að breyta frv. við 3. umr. og leggur því til að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir.