Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Ég gat ekki betur heyrt á ræðu hv. 7. þm. Reykn. og formanns Framsfl. að hann tryði því að aðild að Evrópska efnahagssvæðinu væri endastöð. Ég kvaddi mér hljóðs í mars 1989 þegar Evrópskt efnahagssvæði kom fyrst til umræðu hér í þinginu og ræddi við þáv. forsrh. um fyrirvara, ég ræddi við hann um Evrópskt efnahagssvæði og það sem koma skyldi. Þá var verið að fara til Óslóar til viðræðna. Þá talaði hæstv. þáv. forsrh. um fyrirvara af Íslands hálfu og hann endurtekur þá fyrirvara hér. Hv. 7. þm. Reykn. talar, auk fyrirvaranna í sjávarútveginum, um fjármagnsflutninga, uppkaup á landi, aðild að orkufyrirtækjum, fólksflutninga og fleira sem hann saknaði og hefur ekki áttað sig á að eru fyrir löngu komnir út úr öllu þessu. Það eru ekki neinir fyrirvarar fyrir utan sjávarútvegsfyrirvarann í þeim samningum sem eru núna um Evrópskt efnahagssvæði. Það er búið að taka þá alla fyrir löngu í burtu.
Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði, eins og hann liggur nú fyrir, er ekkert annað en gálgafrestur og mun auðvelda þeim öllum leikinn sem hafa að markmiði að keyra Ísland alla leið inn í Evrópubandalagið. Mig undrar að hv. 7. þm. Reykn. skuli ekki vera búinn að átta sig á þessu. Hann er fulltrúi í utanrmn. og hlýtur að hafa fylgst með þessum málum og ætti af lestri skýrslu hæstv. utanrrh. og umræðum um hana að vera búinn að átta sig á því að það stöðvar enginn þá menn sem eru á leiðinni inn í Evrópubandalagið, það stoppar enginn við Evrópskt efnahagssvæði. Þeir munu halda áfram alla leið og þingmaðurinn hlýtur að vera búinn að átta sig á því.