Utanríkismál

115. fundur
Miðvikudaginn 01. apríl 1992, kl. 22:41:00 (4973)


     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Hv. 14. þm. Reykv. vitnaði til fundargerðar óformlegs fundar forseta þjóðþinga EFTA í Strasborg sem forseti Alþingis sat. Forseti vill af því tilefni vekja athygli þingmannsins á því, en það gæti hafa farið fram hjá hv. 14. þm. Reykv., að forseti gaf yfirlýsingu vegna þessarar fundargerðar þar sem gerð var

grein fyrir því að þessi tilgreinda fundargerð er bæði villandi og forseti gerði mjög glögga grein fyrir því hér í yfirlýsingu 19. mars sl.