Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Þetta nefndarálit er að sjálfsögðu opinbert plagg og aðgengilegt öllum þeim sem eftir því óska. Og eins og leiðir af eðli máls heyra framkvæmdaþættir þeirra tillagna sem nefndin leggur til undir ýmis ráðuneyti. Að því er fræðslumálin varðar er sérstaklega bent á Upplýsingamiðstöð ferðamála um forustu. Í því efni fjallar nefndin sérstaklega um útgáfu fræðsluefnis, myndefni, skilti og merkingar þar sem þegar hefur tekist samstarf milli Náttúruverndarráðs og Vegagerðar ríkisins og framkvæmdir hafnar á tillögum nefndarinnar að því leyti. Lögð er áhersla á útgáfu landabréfa og korta. Það er sérstaklega fjallað um tilkynningaþjónustuna og þá aðila sem að henni hafa staðið, Landssamband hjálparsveitar skáta, Landssamband flugbjörgunarsveita og Securitas. Það segir hér svo, með leyfi forseta:
,,Nefndin telur ekki rétt að takmarka eða banna ferðir fólks um ákveðin landsvæði á neinum árstímum að öðru jöfnu. Hins vegar eru nokkur landsvæði og sumar ferðir þess eðlis að rétt er að taka upp tilkynningaskyldu. Viðtakendur gætu verið tiltekið eitt símanúmer, t.d. á vegum björgunarsveitanna. Rétt er að slík tilkynningaskylda hvíli á innlendum sem erlendum ferðamönnum og einstaklingum jafnt sem hópum.
Nefndin leggur til að eftirfarandi svæði verði tilkynningaskyld: Vatnajökull, Langjökull, Hofsjökull og Mýrdalsjökull, allt landsvæðið norðan við Ísafjarðardjúp og Ingólfsfjörð á Ströndum, Tröllaskagi, hálendið frá Jökulsá í Lóni norður að Jökulsá í Fljótsdal. Og eftirtaldar ferðir ættu að vera tilkynningaskyldar: Allar gönguferðir, skíðaferðir, klifurferðir og ferðar á vélknúnum ökutækjum á öllu hálendinu sem taka meira en einn dag á tímabilinu 1. des. til 1. maí.``
Ég ítreka að nefndarálitið er opinbert plagg og aðgengilegt öllum sem þess óska. Ég þykist vita að þeir aðilar sem hér koma að máli, þó heyri undir ýmis ráðuneyti, leggi sig fram um að koma þessum tillögum í framkvæmd.