Aðgerðir gegn börnum í Río de Janeiro

116. fundur
Fimmtudaginn 02. apríl 1992, kl. 12:25:00 (5047)

     Ragnhildur Eggertsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hæstv. umhvrh. hefur staðfest hér alveg hræðilegar upplýsingar sem við höfum fengið í gegnum fréttir, upplýsingar sem, að því er mér skilst, eiga ekki að koma mjög á óvart. Ég hef þá tilfinningu að með því að Íslendingar taki þátt í þessari ráðstefnu, hversu áríðandi sem hún er, séum við að samþykkja það sem er að gerast þarna. Ég get ekki séð af hverju á ekki að koma fram opinberlega yfirlýsing af hálfu Íslands um það að við samþykkjum þetta ekki, að við getum ekki tekið þátt í ráðstefnu í landi þar sem er verið að hreinsa til með því að myrða börn.