Norræna ráðherranefndin 1991--1992

117. fundur
Fimmtudaginn 02. apríl 1992, kl. 17:17:00 (5083)

     Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Í máli hv. þm. kom í rauninni ekkert efnislegt fram sem skýrði þessa afstöðu og vinnu af hálfu fulltrúa Framsfl. í þessu máli. Það er því svo sem engu að svara sérstaklega. Það er svo mál út af fyrir sig hvaða tilefni þingmenn Framsfl. telja að komi sér vel í sambandi við umræður á Alþingi. Ég hefði í þeirra sporum kosið annað og skárra tilefni til þess að orðum væri beint sérstaklega til þeirra.