Skálholtsskóli

118. fundur
Föstudaginn 03. apríl 1992, kl. 13:40:00 (5128)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Vegna ummæla hæstv. ráðherra um stofnkostnað skólans tek ég fram að ég skil vel að núv. ríkisstjórn vilji ekki setja neitt fast fram um fjárframlög til stofnkostnaðar Skálholtsskóla. Ég tel þó að ákvæði mættu og ættu að vera um skiptingu byggingarkostnaðar milli ríkis og skólans. Það fer að sjálfsögðu eftir fjárlögum hverju sinni hver upphæðin er.