Björn Bjarnason
:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að ræða efnislega þetta mikla frv. sem hæstv. dómsrh. hefur lagt fram. Mér mun gefast færi á að gera það í hv. allshn. Hvorki formaður þeirrar nefndar né varaformaður eru á þessum fundi þannig að mér þótti skylt sem nefndarmanni að standa upp vegna þeirra óska hæstv. dómsmrh. að nefndin lyki störfum sínum við frv. í vor svo það gæti orðið að lögum áður en þingi lyki. Ég vek máls á því að hæstv. ráðherra hefur verið ákaflega röskur við að leggja mikla lagabálka fyrir Alþingi á þessum vetri og bálka sem allshn. hefur farið gaumgæfilega yfir og er núna að ljúka yfirferð sinni yfir frv. til barnalaga. Vonandi mun það takast í næstu viku hjá nefndinni að ljúka þeirri yfirferð sem hefur verið mjög nákvæm og ítarleg. Síðan hafa komið fram mörg merk frv. frá hæstv. ráðherra, m.a. um skaðabótalög og ýmsa grundvallarþætti í okkar löggjöf. Ég verð að segja það sem einn nefndarmanna að mér finnst í sjálfu sér ólíklegt að hv. allshn. takist að afgreiða þetta mál í vor ef hún ætlar að beita þeim nákvæmu vinnubrögðum sem hún hefur beitt, t.d. við yfirferðina yfir barnalögin, og ég tel að það sé ákaflega mikilsvert fyrir Alþingi og þingmenn og þá sem að slíkum málum koma utan Alþingis að gefa sér rúman tíma til að fjalla um jafnmikilvæg málefni og þetta. Ég útiloka sjálfsögðu ekki að nefndin geti farið yfir þessar 140 greinar sem hér eru og komist að niðurstöðu um þær á næstu vikum en ég vildi aðeins slá þennan varnagla vegna ummæla hæstv. ráðherra að það kann svo að fara að vegna anna í nefndinni og við önnur merk frv. sem hann hefur lagt hér fram takist henni ekki að ljúka þessu áður en þingi lýkur í vor.