Ragnhildur Eggertsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég fagna því að hv. 3. þm. Reykv. Björn Bjarnason telur að örlítið meiri tíma þurfi í allshn. til að afgreiða svo mikilvægt mál. Ég get hins vegar skilið sjónarmið hæstv. ráðherra en mér finnst þetta mál svo mikilvægt að það hljóti að þurfa að fjalla mjög vel um það.
Ég kann hæstv. ráðherra þakkir fyrir að koma svo mikilvægu frv. á framfæri. Það hefur vissulega verið mikil þörf á að koma svona frv. á framfæri og ég efast ekki um að að baki liggur gífurlega mikil vinna. Hvað varðar svör ráðherra, þá þakka ég þau en get ekki enn þá skilið um hvað verið er að fjalla, en ég mun vissulega beita mér fyrir því í allshn., á meðan ég er þar, að reynt verði að útskýra það fyrir mér þannig að ég skilji hvað verið er að tala um.
Ég endurtek það að ég hallast að því varðandi 10. gr. að þar ætti að fara eins að og í norskum lögum. Ég er hrædd við að með því að setja svona lagað í lög sé verið að ýta undir það að tilfinningar kjörforeldris til kjörsbarns séu ekki eðlilegar.