Samkeppnislög

119. fundur
Mánudaginn 06. apríl 1992, kl. 13:48:00 (5170)

     Kristín Ástgeirsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem fram kom hjá hv. 1. þm. Austurl. varðandi þetta mál. Ég sat allan föstudaginn og það hefur komið mikið af málum inn á okkar borð og það hafði algjörlega farið fram hjá mér að þessu máli hefði verið dreift. Því vil ég ítreka þá spurningu sem hér er fram borin hvaða nauðsyn beri til þess að taka þetta núna fyrir þar sem okkur hefur ekki gefist kostur á því að kynna okkur málið.