Sameining sveitarfélaga

120. fundur
Þriðjudaginn 07. apríl 1992, kl. 13:41:01 (5201)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Á síðasta ári starfaði á vegum félmrn. nefnd um skiptingu landsins í sveitarfélög. Sú nefnd skilaði skýrslu í september 1991 og nefnir þar þrjár leiðir til breytingar á skiptingu landsins í sveitarfélög, sérstaklega á landsbyggðinni. Hvað verður gert í framhaldi af starfi nefndarinnar? Má vænta þess að lagt verði fram frumvarp um sameiningu sveitarfélaga sem byggist á tillögum nefndarinnar?