Sameining sveitarfélaga

120. fundur
Þriðjudaginn 07. apríl 1992, kl. 13:42:00 (5202)

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Í framhaldi af starfi fyrri nefndar sem skilaði af sér skýrslu um hvaða valkostir væru fyrir hendi í þessu efni hef ég að nýju skipað nefnd með aðild allra stjórnmálaflokkanna ásamt fulltrúum Sambands ísl. sveitarfélaga. Í erindisbréfi þessarar nefndar er lögð áhersla á að nefndin skili niðurstöðu fyrir 1. okt. nk.