Stefán Guðmundsson
:
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir og þetta voru vissulega orð í tíma töluð. Ég hef hreyft þessu máli hér áður og ég hef áhyggjur af því hvert hér stefnir.
Það er út af fyrir sig virðingarvert ef forseti hefur tekið upp ný og breytt vinnubrögð en sannarlega eru þau ný þegar þingmál frá óbreyttum þingmönnum hafa komist að, án þess að ráðherrar væru viðstaddir því að sannast að segja er það fátítt að þeir mæti hér í þingið. Venjulega eru þeir miklu færri en sitja hér inni nú.
Ég flutti tillögu í nóvembermánuði sem er búin að vera nokkrum sinnum á dagskrá en ég sé að hún er ekki á dagskrá í dag. Ég sé hins vegar að sá ráðherra sem ég beini máli mínu til situr hér í dag. Ég skil því ekki af hverju sú tillaga hefði ekki átt að vera á dagskrá.
Kannski finnst einhverjum, virðulegur forseti, að ég segi of mikið en mér finnst þetta vera ómögulegir starfshættir. Ég tek undir það sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði að mér finnst Alþingi líkjast einum of afgreiðslustofnun. Því held ég að það sé líka orðið tímabært að við veltum fyrir okkur og skoðum hvort við höfum gengið götuna til góðs með því að breyta þingsköpum.