Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti hefur sennilega ekki talað nógu skýrt þegar hún reyndi að gera grein fyrir því að mál, sem væru á dagskrá í dag, heyrðu undir hæstv. menntmrh. og undir þann málaflokk sem menntmn. fjallar um. Önnur mál eru ekki á dagskrá í dag. Reynt var að skipuleggja dagskrár þessarar viku þannig að einn ráðherra hefði hvern fund fyrir sig og málin, sem heyrðu undir þann málaflokk og þingmenn flyttu væru jafnframt á dagskrá á sama fundi.
Varðandi það að þingmenn eigi hér mörg mál sem bíði 1. umr. þá getur forseti tekið undir það. Það veldur forseta vissulega áhyggjum að mál ganga ekki betur fram en raun ber vitni. En ég held að við verðum öll að hafa það í huga að fundir eru tímasettir en umræður yfirleitt ekki. Þess vegna gengur oft seint að koma málum áfram, jafnvel þótt þau séu á dagskrá fund eftir fund. Við þetta er erfitt að ráða nema við breytum þingsköpum í þá veru að þetta tvennt fari betur saman. Eins og áður hefur verið nefnt stendur til að endurskoða þingsköp og vonandi finnum við góða lausn á þessu máli.
Ég vil jafnframt minna á að við erum á þingi með nýju sniði, í einni málstofu, og þinghaldið í vetur hefur borið nokkurn keim af því. Ég vænti þess að við getum verið sammála um að við erum að þreifa okkur áfram í einni málstofu. Áður gátum við skipt verkum á milli tveggja deilda samtímis þar sem aðallega voru frumvörp til umfjöllunar. Þetta vildi forseti segja sem svar við þeim athugasemdum sem hér hafa komið fram.
Varðandi það að þingmenn hafi átt mál á dagskrá fund eftir fund og þau hafi ekki komist til umræðu, þá eru ýmsar skýringar á því. Stundum er það af því að viðkomandi þingmaður er ekki tilbúinn eða hefur ekki aðstöðu til að mæla fyrir sínu máli. Stundum er það vegna þess að viðkomandi ráðherra er ekki viðstaddur á fundi og þingmaðurinn vill eðlilega að ráðherrann sé við þegar hann mælir fyrir málinu. Þannig geta verið ýmsar ástæður fyrir þessu en það er fullur vilji forseta að reyna að greiða fyrir málum eins og mögulegt er og ég ætla að vona að hv. þm. geri sér grein fyrir því.