Framkvæmd búvörusamnings

122. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 10:41:00 (5310)


     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Á þessum stutta tíma er ekki hægt að fara mörgum orðum um þetta mikla vandamál en ég vil aðeins undirstrika það sem kom fram hjá hæstv. landbrh. að þetta mál þarf að taka föstum tökum og leita allra leiða til að hægt sé að draga eitthvað úr því sem allt stefnir nú að. Stjórn Búnaðarfélags Íslands hefur ásamt Stéttarsambandi bænda átt viðræður við landbrh. og starfsmenn hans og lagt áherslu á að nú þegar verði reynt að gera sér grein fyrir því hvernig horfurnar eru í reynd og út frá því að vinna sig eitthvað út úr vandanum. Hér er ekki aðeins um gífurlegt áfall fyrir bændur og landbúnaðinn að ræða heldur þjóðfélagið allt ef svo fer fram sem kom fram í tölum hæstv. ráðherra.