Jóhann Ársælsson :
Virðulegi forseti. Við höfum orðið vitni að því á undanförnum missirum að hæstv. utanrrh. hefur farið í ferðalög til Ameríku til að reyna að fá eitthvað meira að gera fyrir fólkið sem hefur unnið fyrir herinn. Ég er út af fyrir sig ekki að koma hér til þess að deila á það starf sem fólk hefur innt þar af hendi en hitt ætla ég að deila á að íslensk stjórnvöld virðast berja höfðinu við steininn og ekki vilja viðurkenna það eða gera sér grein fyrir því almennilega að þessi atvinnustarfsemi er á undanhaldi og við því þarf að bregðast, ekki með því að betla störf hjá ameríska hernum, heldur með því að skapa ný störf fyrir það fólk sem hefur unnið á vegum hersins. Það verða ekki sköpuð fleiri ný störf handa Íslendingum að óbreyttu hjá hernum á Keflavíkurvelli eða í þjónustu við hann.