Ferðakostnaður lækna

122. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 13:06:00 (5368)



     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra, sem eru þingflokksformaður og ráðherra Alþfl., hvort þetta mál muni ekki hafa verið tekið upp í þingflokki Alþfl., því að hér kemur fram að þetta er sameiginlegt áhugamál þeirra og hvar málið hafi þá strandað í kerfinu fyrst þeir sjá ástæðu til þess að taka það upp með þessum hætti í þingsölum.