Virðulegur forseti. Í frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum fyrir árið 1992, í ákvæði þar til bráðabirgða, var gert ráð fyrir því og í umsögn fjármálaskrifstofu fjmrn. að rúmlega 600 umsóknir lægju þegar fyrir hjá einstaklingum um endurgreiðslur á þessum tannréttingakostnaði. Í umsögn fjmrn. er gert ráð fyrir því að þessum umsóknum geti fjölgað um helming og því geti heildarkostnaður numið um 240 millj.
kr. og ef, eins og heilbrrh. lýsti hér áðan, 50% yrði greitt af honum þá væri það í kringum 120 millj. kr. Nú liggja fyrir 4.500 umsóknir sem þýðir að tæplega 1 milljarð kr. á að greiða út eða heildarkostnaður er í kringum 1 milljarður kr. sem þýðir ef 50% reglan er notuð að þarna er um 500 millj. sem út yrðu greiddar. Þetta undirstrikar auðvitað það sem menn héldu fram í umræðu um ráðstafanir í ríkisfjármálum í janúar að fjárlögin og allar þessar aðgerðir sem þar var verið að gera eru algerlega óraunhæfar.