Heimild til að selja kirkjujörðina Stóru-Borg

123. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 14:21:00 (5387)


     Guðrún Helgadóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Ég bið velvirðingar á að vera að ragast í þessu máli. En ég vil benda á að hér stendur í titli þessa frv.: ,,Frv. til laga um breyting á lögum nr. 33 frá 22. apríl 1947, um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja Grímsneshreppi kirkjujörðina Stóru-Borg, með síðari breyting.`` Þetta er sem sagt breyting á þeim lögum.
    Af því ég hef nú fyrir sið að greiða ekki atkvæði um eitthvað sem ég skil ekki þá vildi ég óska eftir því að einhver útskýrði hreinlega fyrir mér hvað er hér um að vera.