Skipulag ferðamála

123. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 16:29:00 (5397)


     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Sú skoðun mín er alveg óbreytt frá því sem áður hefur verið að líta eigi á ferðamannaþjónustu sem gjaldeyrisskapandi atvinnugrein og hún eigi af þeim sökum að hafa sömu skattameðferð og útflutningsatvinnuvegir.
    Í annan stað hef ég ekki verið með dylgjur í garð eins né neins. Ég hef aðeins skýrt frá því að eðlilegt sé að trúnaðarmenn ráðherra séu hans trúnaðarmenn.