Framhald þingfundar

123. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 16:33:00 (5401)

     Kristín Einarsdóttir :
    Virðulegur forseti. Mig langaði til að spyrja virðulegan forseta hversu lengi ætlunin væri að halda þessum fundi áfram. Við höfum setið hér meira og minna frá því klukkan hálfellefu í morgun og mér er ekki kunnugt, ég hef margspurt minn þingflokksformann um það, hvort eitthvert samráð hefði verið haft um það hversu lengi skyldi haldið áfram. Henni er ekki kunnugt um það og hefur ekki getað veitt mér þær upplýsingar. Mig langar þess vegna til að spyrja hversu lengi ætti að halda áfram. Einnig langar mig að spyrja

um fund á morgun, bæði að því er varðar tíma og annað því ekki hefur heldur verið haft samráð við þingflokksformann um það að því ég best veit. Alla vega hef ég ekki getað fengið þær upplýsingar og þess vegna langar mig að spyrja bæði um daginn í dag og daginn á morgun.